Starfamessa 2015

Starfamessa á Suðurlandi 2015 var haldin í Fjölbrautaskóla Suðurlands 19. mars 2015 kl. 10-16 í samstarfi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Atorku – félags atvinnurekenda á Suðurlandi, Vinnumálastofnunar á Suðurlandi og grunn- og framhaldsskóla á svæðinu.

Á Starfamessu á Suðurlandi 2015 voru 28 kynningarstöðvar þar sem yfir 30 sunnlensk fyrirtæki kynntu starfsemi sína og störfin sem unnin eru innan fyrirtækjanna.  Áherslan að þessu sinni var á iðn- og tæknimenntun, ferðaþjónustu og garðyrkju. Lögð var áhersla á að kynningar væru líflegar til að vekja áhuga nemenda, en milli 15 og 16 hundruð nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla og framhaldsskóla mættu á Starfamessuna, auk kennara, ungra atvinnuleitenda á vegum Vinnumálastofnunar á Suðurlandi, sveitarstjórnarmanna og annarra gesta.  Þar mátti sjá úrbeiningu og vinnslu á kjöti, pylsugerð, hársnyrtingu, ljósmyndun, andlitsförðun, beislissmíði, mismunandi rafmagnskapla, alls kyns smíðisgripi blikksmiðs, dúklagningu, bílvél, tækjabúnað málara, gerð á einangrun fyrir plaströr, o.fl., o.fl.

Kveikjan að Starfamessunni var könnun sem gerð var á þörf fyrir verk- og tækninám á Suðurlandi í samvinnu Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Fræðslunetsins – símenntunar á Suðurlandi.  Við vinnslu skýrslunnar komu fram hugmyndir um að staðið yrði sameiginlega að kynningu á störfum og fyrirtækjum á Suðurlandi.  Í skýrslunni kemur fram að ungmenni á Suðurlandi vita lítið um þau störf sem unnin eru á vinnumarkaði.  Það  varð því eitt af fyrstu verkefnum samráðshóps menntunar og atvinnulífs að blása til Starfamessunnar.

Starfamessan tókst vel og iðaði Fjölbrautaskóla Suðurlands af mannlífi og starfsgleði allan tímann.

Greinargerð starfamessa 2015