Endurskoðendur

Á aðalfundi er kosið löggilt endurskoðendafyrirtæki, óháð Atorku, til eins ár í senn.
Endurskoðendum Atorku ber að endurskoða ársreikning félagsins og fara þar með yfir bókhald þess og reikninga. Að því loknu skulu þeir staðfesta ársreikninginn með áritun og skal áritunin fylgja ársreikningnum.
Endurskoðendur skulu hafa aðgang að öllu bókhaldi félagsins og öðrum gögnum sem varða félagið.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.

 
Löggilt endurskoðendafyrirtæki Atorku Group hf. er PricewaterhouseCoopers hf. Endurskoðendur á vegum þess eru Kristinn Freyr Kristinsson og Sighvatur Halldórsson.



Flýtileiðir


'Search' fannst ekki



Skipta um leturstærð