Fjárfestingar

Geysir Green Energy leitar leiðandi markaðstækifæra í virkjun jarðvarma, fjárfestir í þróun og smíði jarðvarmavirkjana, yfirtekur jarðvarmavirkjanir í eigu orkufyrirtækja og tekur þátt í einkavæðingu orkufyrirtækja víða um heim. Geysir Green Energy samræmir hagsmuni fjárfesta, hagkvæma orkuöflun og umhverfisvernd. Atorka Group er kjölfestufjárfestir í Geysir Green Energy með 41% eignarhlut.

Promens er ein stærsta plastverksmiðja heims. Félagið rekur 59 verksmiðjur í 20 löndum í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Promens er meðal stærstu iðnfyrirtækja á Íslandi og áætluð velta þess árið 2008 er 760 milljónir evra. Promens er fyrirtæki sem hefur vaxið jafn og þétt í áranna rás með fjárfestingum í eignarhlutum í fyrirtækjum og þátttöku í stefnumótun, framtíðarsýn og fjármagnsskipan þeirra (e. buy and build strategy) og eru starfsmenn þess um 6000 talsins. Atorka Group er stærsti hluthafi Promens með 79% eignarhlut, en þynntur eignarhlutur er 63%.

InterBulk Group er þriðja stærsta gámafyrirtæki í heimi. InterBulk stefnir að því að verða leiðandi félag á heimsvísu í sérhæfðum gámaflutningum fyrir efnaiðnað, en miklar kröfur um áreiðanleika eru gerðar á þeim markaði. Starfsemi InterBulk byggir á nýjustu tækni og öflugu stjórnendateymi. Félagið rekur starfsemi sína á mörkuðum í vexti. Höfuðstöðvar þess eru í Rotterdam og félagið er skráð á AIM markaðinn í London. Atorka Group er stærsti hluthafi í Interbulk með 41% eignarhlut.

 Clyde Process Solutions (CPS) er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í framleiðslu á háþróuðum flutningskerfum fyrir framleiðsluferli, sem og lausnum til að draga úr áhrifum mengunar. Félagið er með starfsemi í öllum heimsálfum. Þessi kerfi minnka kostnað, draga úr mengun og auka hagkvæmni í framleiðsluferlinu. Þau eru notuð í fjölda atvinnugreina, meðal annars í gipsframleiðslu, sementsframleiðslu og stálframleiðslu og einnig í matvælaiðnaði og efnaiðnaði. Meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru General Electric, Exxon Mobil, Kraft, Wrigley's og Nestlé. Velta hins sameinaða félags er um 7 milljarðar íslenskra króna. CPS er skráð á AIM markaðinn í London. Atorka er stærsti hluthafi í félaginu með um 24% eignarhlut.

Romag er leiðandi framleiðandi í Bretlandi á sviði sérhæfðra glersamsetninga. Fyrirtækið framleiðir meðal annars hágæða hert gler fyrir bæði húsbyggingar og farartæki. Romag hefur einnig þróað PowerGlaz, rafmyndandi glerflögur sem breyta sólarljósi í orku. Romag er skráð á AIM markaðinn í London og Atorka er stærsti hluthafinn með 24% eignarhlut.

NWF samanstendur af þremur sjálfstætt reknum deildum: Dreifingardeild: Vörugeymsla og pökkunarstarfsemi. Eldsneytisdeild: Birgi fyrir heimili, bújarðir, vöruflutningaaðila, rútufyrirtæki, verksmiðjur og ýmsa aðra viðskiptavini sem nota olíu sem hita- og orkugjafa og til að knýja farartæki. Fóðurdeild: Birgi fyrir nautgripa- og sauðfjárbændur, útvegar vörur og annast þjónustu. Stefna NWF er að byggja áfram upp verðmæti hluthafa sinna með því að auka arðsemi þessara þriggja rekstrareininga með fjárfestingum, eignaraðild og stöðugum vexti. NWF er skráð á AIM markaðinn í London og er eignarhlutur Atorku 25%.

 
AENV er leiðandi framleiðandi á vatnshreinsilausnum í Kína með tuttuga ára reynslu að baki. Fyrirtækið sérhæfir sig í heildarlausnum á sviði vatnshreinsunar, allt frá áætlanagerð og hönnun til framleiðslu, uppsetningar, reksturs og viðhalds. AENV er skráð í kauphöllinni í Singapúr (SGX-ST). Eignarhlutur Atorku er 18%.

 

Björgun hf. er frumkvöðull að byggingu bryggju- og strandhverfa hér á landi. Fyrirtækið annast gerð landfyllinga, skipuleggur gatna- og lagnakerfi og hefur umsjón með hönnun húsa sem reist eru í strandhverfum. Björgun hefur átt samstarf við virtustu arkitekta og hönnuði landsins á þessu sviði og óhætt er að segja að félagið hafi gjörbylt hugmyndum Íslendinga um strandsamfélög. Áætlað er að reisa bryggjuhverfi víðs vegar um landið. Eignarhlutur Atorku er 100%.




Flýtileiðir


'Search' fannst ekki



Skipta um leturstærð